Færsluflokkur: Trúmál og siðferði
19.7.2010 | 12:27
Hvað framleiða fjármálafyrirtæki ?
Örugglega telja fjármálafyrirtæki og matsfyrirtæki og allir þeir sem lifa af því að velta peningum annarra á milli sín það mjög slæmt ef á að á að lækka rentur þeirra um helming eða meira.
Ég fylltist bjartsýni við dóma hæstaréttar og þóttist sjá að nú færi að komast fast land undir þessi lán þannig að fasteigna- og bifreiðamarkaðurinn hér á landi fari að virka á eðlilegann hátt.
Þannig gæti fólk farið að hagræða hjá sér og sníða útgjöldum sínum stakk eftir innkomu.
Hálfbyggð hús vítt og breitt um borgina seldust þeim sem efni hefðu á að fullbyggja þau o.s.fr.
Bankar og lífeyrissjóðir verða bara að slaka á í 2-3 ár þó hver banki skili ekki tugum milljarða í afgang ársfjórðungslega í miðju efnahagslægðarinnar.
Bankar geta reyndar tekið til í sínum rekstri með fækkun starfsfólks og útbúa s.b.r. nýlega frétt um alltof hátt hlutfall starfsfólks í fjármálafyrirtækjum m.v. nágrannalöndin.
Víkjum nú sjónum að þeim fyrirtækjum sem hagnast á dómunum.
Hvort er eftirsóknarverðara fyrir gjaldeyrisöflun þjóðarinnar að keyra sjávarútvegsfyrirtæki í þrot eða fjármögnunarleigu ?
Fyrirtæki eins og Ræktunarsamband Flóa og Skeiða ? (sem borar eftir heitu vatni, þ.l. innlendri orku ?)
Nei í mínum huga eiga þessir dómar standa óhaggaðir í þágu fyrirtækja og heimila í landinu.
Tek fram að lokum að ég er ekki með lán í erl. mynt.
Dómar Hæstaréttar ógna stöðugleika | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.5.2010 | 11:53
Nýr dómur vs. ný lög félagsmálaráðherra ?
En hvaða áhrif hafa þessi lög sem félagsmálaráðherrann er að baslast með á þessa dóma?
Geta ný lög þvingað verðtryggingu á þessi lán þó að þessi dómur segi annað ?
Því ef lög ráðherrans þvinga verðtryggingu á lánin, þá sé ég ekki betur en lögin komi til með að vinna fjármögnunarfyrirtækjunum í hag.
Það kannski skýrir afhverju fjármögnunarfyrirtækin vilja ekki semja.
Gaman væri ef einhver lögfróður sem veit þetta myndi kommenta.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 11:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.4.2008 | 07:39
Hvar er óeirðalögreglan núna ?
Skyldi ekki þurfa að taka á þessu rétt eins og kjarabaráttu vörubílstjóra ? Þarna er hugsanlega verið að skerða heilsufarslegt öryggi fólks.
Ætli séu til vökulög um lækna og starfsfólk á sjúkrahúsum, t.d. fyrir unglækna sem að ég held ganga sólarhringsvaktir.
Stál í stál á Landspítala | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |